Neibb, þetta er bara vitleysa í mér þeir virðast amk virka!
Jæja...ástæðan fyrir því að fröken ragnheiður ákvað að blogga í dag er einfaldlega sú að mér leiðist afskaplega mikið! Úti er sól og 20 stiga hiti og allir sem mögulega geta verið farnir heim úr vinnunni eru farnir, en af því ég þarf að vera til fimm og loka lyfseðlasjoppu Garðabæjar er ég næstum ein eftir...með ekkert að gera. Reyndar virðist vera til fólk sem þarf á lækni að halda í dag svo að vera mín hér virðist ekki vera algjörlega tilgangslaus.
Kisugreyið mitt fór til dýralæknisins í gær í geldingu. Auminginn var eins og drukkinn......köttur eftir svæfinguna. Hún hafði ekki vit á að hvíla sig svo hún skjögraði um alla íbúð, framlappirnar á leið í eina átt en afturlappirnar á leið í aðra, studdi sig svo við vegginn af og til svo hún dytti ekki. Klöngraðist upp í gluggakistu og fór að glápa út en smám saman seig trýnið neðar og neðar þangað til það snerti kistuna og hún sofnaði standandi með nefið í gólfinu. Frekar skondin sjón. En hún átti frekar bágt í gær, borðaði mat og ældi honum og vissi ekki hvernig hún átti að vera. Ég fór heim í hádeginu í dag og kíkti á hana og þá var hún mikið hressari :)!
föstudagur, júlí 18, 2003
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli