föstudagur, mars 05, 2004

Ég er nú aldeilis góð. Sendi út messuboð í gær vegna messu sem á að vera á spítalanum á sunnudaginn og skrifaði að hún væri sunnudaginn 7. janúar! Það er hreinlega ekki allt í lagi í hausnum mínum. Samkvæmt mínum útreikningum verður sunnudagurinn 7. janúar næst árið 2007 svo að þessi messa er aldeilis boðuð með miklum fyrirvara.

Annars er ég að fara á námskeið í vefsíðugerð síðar í mánuðinum og er afar upptekin við að sækja um styrki fyrir því út um allan bæ. Ég nýti vinnutímann minn sem sagt afar vel!

Engin ummæli: