miðvikudagur, apríl 28, 2004

Sá áðan að maggapagga er farin að blogga aftur eftir langt hlé og mundi þá eftir því að einhvers staðar ætti ég líka bloggsíðu sem ekki hefði verið hreyft við í langan tíma. Það er sem sagt kominn rúmur mánuður síðan ég bloggaði síðast og kannski kominn tími til að reyna að bæta úr því aðeins. Ég er búin að vera alveg gasalega upptekinn þennan mánuðinn á vefsíðugerðarnámskeiði en það kláraðist núna á mánudaginn. Þá er aldrei að vita nema ég komi mér upp eins og einni vefsíðu, svona til að nota það sem ég kann áður en að ég gleymi því.

Svo er að koma sumar og þá fer mann að langa að vera sem mest úti. Við Andri erum búin að ákveða að ganga Laugarveginn í sumar (og þá á ég ekki við þennan í Reykjavík) með vaktinni hans Andra í vinnunni. Þannig að það er um að gera að fara að koma sér í eitthvað fjallgönguform svo maður geti nú notið þess að ganga en ekki vera í einhverju ströggli með það. Fyrsti áfangi í þjálfunaráætluninni verður tekinn núna um helgina en við höfum ekki alveg ákveðið hvort við ætlum að taka bara létt á því og fara í heiðmörk með slökkviliðsfólki eða setja smá kraft í þetta og drífa okkur upp á esjuna. Ætli við ákveðum það ekki bara á síðustu stundu og förum þá eftir því hvernig stuði við erum í. Vona bara að veðrið verði sæmilegt.

Annars kveð ég í bili og kannski blogga ég bara aftur fljótlega. Var samt svona að pæla í því hvort einhver læsi þetta. Ef svo skemmtilega vill til má sá hinn sami alveg láta mig vita! (c:

Engin ummæli: