Var að lesa svo ógurlega skondið innlegg á femin.is (jájá ég veit ég á að vera að vinna ... er alveg að fara að halda áfram!). Þar var kona, jafngömul mér og í sama stjörnumerki (fiskunum) að skrifa um hvað hún væri hrikalega óákveðin og ætti erfitt með að taka ákvarðanir varðandi framtíðina og væri alltaf að skipta um skoðun á því hvað hún vildi læra o.s.frv.. Alveg hárnákvæm lýsing á því hvernig mér líður þegar ég þarf að taka ákvarðanir, alltaf svo margt sem kemur til greina. Ég næ nú samt alltaf að slumpast í gegnum þessar ákvarðanatökur án þess að gera nein stórkostleg misktök. Held að galdurinn felist í því að taka ákvörðun og reyna svo eftir fremsta megni að halda sig við hana. Ef einhver hefur áhuga er slóðin hér.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli