Jæja, loksins, loksins, loksins, heilum mánuði eftir fyrsta tilboð í íbúðina í Hafnarfirði, erum við búin að skrifa undir kaupsamning! Allar flækjur eru leystar og vesenið búið svo að núna getur þetta ekki gert annað en að ganga vel. ... er það ekki annars?
Er að prenta út grein af netinu og er alveg ægilega sparsöm á pappírinn ákvað að prenta báðum megin á allar síðurnar með því að prenta fyrst oddatölusíðurnar og svo sléttu. Held svei mér þá að mér sé meira að segja að takast að láta þetta allt snúa rétt í prentaranum. Mér finnst ég vera jafnklár og "þetta-var-ekkert-mál-konan" í Húsasmiðjuauglýsingunum. Ætti samt ekki að hrósa happi of snemma, það er alveg slatti eftir. Nokkrar mínútur af þessu dásamlega surgi í prentaranum mínum. Held hann sé eitthvað kvefaður, það eru svo mikil læti í honum.
miðvikudagur, nóvember 17, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
til hamingju með íbúðarkaupin :D
maggan
já, til hamingju,
hrönnzlan
Skrifa ummæli