fimmtudagur, desember 16, 2004

Próf á eftir!!!

Jæja þá líður að því að ég geti farið að hugsa um jólin. Fer í próf í Opinberri stjórnsýslu á eftir. Þetta er 3ja tíma heimapróf, þarf að velja 3 ritgerðarefni af 5. Er ekkert afskaplega stressuð núna en tók nett kast í gærmorgun þegar mér gekk ekki nógu vel að klára verkefnið sem ég þurfti að skila í gær. Það hafðist svo á endanum.

Var að setja inn nýja tengla hér til hliðar. Hrönn er byrjuð að blogga og svo var tengdó að búa til heimasíðu í skólanum. Setti svo líka hlekki á tvo litla stráka sem eru voða sætir og eiga þessar líka fínu myndasíður sem ég kíki reglulega á.

Hugsið svo fallega til mín milli 13:30 og 16:30 í dag!!!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hugs..hugs...hugs..gottgottgott...
Hronn