Bara tveir dagar í að við flytjum. Höfum verið að safna liði svo vonandi verður þetta bara fljótlegt. Andri er búinn að vera svo ofvirkur í að standsetja undanfarið. Er búinn að setja upp ljós og nýjan sturtuklefa og ætlaði meira að segja að fara að smíða eina skúffu síðast þegar ég heyrði í honum. Ég stend mig nú líka mjög vel í dyttinu. Náði t.d. að setja höldurnar á eldhússkápana eins og ég sagði frá um daginn. Tók mér svo góðan tíma í gær í að negla filt-tappa undir borðstofustólana. Eyðilagði ekki nema fjóra ... tappa það er að segja, ekki stóla. Ættum þá ekki nema tvo stóla eftir ... en nóg um það!
Andri er búinn að panta fágæta myrkrunargardínur í svefnherbergið. Þær verða nú reyndar ekki tilbúnar fyrir helgina, en það verður bara að hafa það. Hann komst líka að því að eitt stykki rúllugardína úr screen-efni frá Vogue kostar um 10.000 krónur. Tíuþúsund! Fyrir eina gardínu! Við fáum reyndar 20% afslátt en það þýðir samt ca. 40.000.- í gardínur í stofuna. Ákváðum bara að geyma þetta aðeins og rölta svo einhvern góðan dag í Rúmfatalagerinn eða Ikea og græja málin þar.
Annars er ég búin að vera alveg ógeðslega dugleg í dag. Búin að vera á milljón og er þar að auki komin vel af stað með tiltekt og skipulagningu á skrifstofunni minni. Bjó til alveg fullt af plássi á borðinu mínu með því að endurskipuleggja smá og það er sko heilmikill munur. Alveg frábært!!! :o)
fimmtudagur, febrúar 03, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli