miðvikudagur, desember 14, 2005

Jólin að koma

Ekki nóg með að ég hafi fengið þennan stórglæsilega vinning frá Háskólanum heldur sendi KB banki mér geisladisk í gær með upptökum frá tónleikum til styrktar krabbameinssjúkum börnum sem mikið var rætt um fyrir ca. ári síðan. Það mætti halda að það væru að koma jól. Við Andri tókum einmitt góðan rúnt í Smáralindinni (og aðeins víðar) í dag og græjuðum meirihluta jólagjafanna á meðan litli karl var voða þægur hjá ömmu sinni. Svo erum við búin að skreyta helminginn af svölunum okkar. Svei mér þá ég held að það séu ekki nema 9 dagar til jóla.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

úff...9 dagar?? Það er bara alltof stutt. Nennirðu að bæta nokkrum dögum við? :)

Ragnheidur sagði...

Þeir voru reyndar ennþá 10 þegar ég skrifaði þetta. En í dag eru þeir bara 4!