föstudagur, júní 02, 2006

Aðdáunardýrkun

Ég var að hlusta á Fm í bílnum áðan og þar lærði ég þetta fína orð. Útvarpsmaðurinn var þar að lýsa textanum með Pink en það fjallar að hans sögn um ... stelpur sem eru haldnar aðdáunardýrkun og vilja vera eins og Britney Spears. Ég ætti kannski að hlusta meira á þessa útvarpsstöð til að auðga orðaforðann.
Annars höfum við fjölskyldan dvalið í góðu yfirlæti í sumarbústaðnum Storð síðustu daga og haft það afar náðugt. Helgin mun svo líklega fara í að græja gæjaherbergið fyrir litla mannauðinn minn en ég fór áðan á stúfana og náði í hitt og þetta til verksins. Fyrsta skrefið er samt að tæma skápinn sem er inni í herberginu og reyna að koma sem mestu í kassa og geymslu en maður þarf eiginlega að komast í rétta stuðið í svoleiðis tiltekt. Mikið væri nú gott ef einhver vildi taka þetta að sér. Alveg er ég viss um að Britney Spears hafi manneskju í vinnu hjá sér við svona verk og það safnast aldrei saman drasl hjá henni. Svei mér þá ef ég er ekki bara haldin aðdáunardýrkun.

1 ummæli:

Dusdus sagði...

Aðdáunardýrkun bwahahahahahhahahaha