miðvikudagur, júní 07, 2006

Ísland í gær

Í gær skellti ég bílhurðinni (með hjálp vindhviðu reyndar) í næsta bíl á bílastæðinu við Bónus og dældaði framhurðina (á hinum bílnum sko). Var ekki með neitt til að skrifa á svo ég fór inn í Bónus og þegar ég kom út aftur var hinn bíllinn farinn svo það var lítið annað að gera en að fara heim. Stuttu síðar hringir síminn og þá er það konan sem var á hinum bílnum og við mælum okkur mót til að fylla út tjónaskýrslu. Eftir að hafa hitt konuna og gengið frá pappírunum fór ég að velta því fyrir mér hvort það segði ekki mikið um Ísland í dag (eða gær ... eða bara nú á tímum) að eftir að hafa beyglað bílinn hennar (sem er nýr btw) og stungið svo af (svona næstum því) að þá þakkar konan mér innilega fyrir að vera heiðarleg varðandi þetta. Einhvern veginn hélt ég að ég ætti frekar að biðjast afsökunar en að fá þakkir.
Svo til marks um hvað Ísland er lítið land að þá er konan gift slökkviliðsmanni svo auðvitað þekkjast mennirnir okkar.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kannski ertu svona heiðarleg af því að þú reyndir ekki að þræta fyrir að hafa skellt á hana. Örugglega fullt af fólki sem hefði bara keyrt í burtu eftir þetta eða ekki viðurkennt "glæpinn". En þetta er samt sorgleg þróun, að fólk reynir að breiða yfir allt sem það gerir og ljúga sig úr vandræðum.

Og ég held að ég sé hætt í pásunni ;o)
K

Ragnheidur sagði...

Húrra fyrir þér! Ég færi þig hið snarasta á hinn listann.