laugardagur, júlí 15, 2006

Rok og rigning

Ojojoj! Þetta er nú meira veðrið sem dregur gjörsamlega úr manni allan mátt. Ég hef ekki farið út úr húsi síðan á fimmtudagskvöldið ef frá eru talin skiptin sem ég rúlla litla kallinum út á svalir í vagninum. Sá litli er reyndar hæstánægður með þetta ástand þar sem vindurinn ruggar vagninum svo notalega og svo fær hann að hanga heima hjá sér í rólegheitum ALLAN daginn sem er draumstaðan fyrir svona vanaföst kríli. Get ekki sagt að mér finnist þetta eins frábært.

Engin ummæli: