miðvikudagur, ágúst 09, 2006

Draugagangur



Rétt í þessu kviknaði á sjónvarpinu sem er hérna við hliðina á mér. Ég sit í tölvunni og þykist vera að læra, fjarstýringin er langt frá mér, ofan á borði þar sem ekkert getur ýtt á hana og feðgarnir eru á Selfossi og ég bara ein heima. Það var reyndar straumur á sjónvarpinu síðan í gærkvöldi en það var slökkt á því og svo skyndilega heyri ég að það kviknar á því og við mér blasir sjónvarpssnjór sem minnir óþægilega mikið á Poltergeist og er þar að auki á stöð sjö ... sem er enn undarlegra því ég var að horfa á skjá einn í gærkvöldi sem er á stöð þrjú á sjónvarpinu, ekki sjö. Ég stilli aldrei á stöð sjö enda ekkert stillt inn á þá stöð. Ætli þetta sé draugur að senda mér skilaboð að handan? Ætti ég þá að einbeita mér að spurningu sjö á prófinu? Eða lesa blaðsíðu nr. sjö? Eða á ég að horfa á sjónvarpið kl. sjö (ööö ... kannski Beverly Hills)?

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

kannski var þetta guð að senda þér skilaboð...er 7 ekki talan hans?? ;) (var ekki einhver saga með 7 fyrirgefningar eða eitthvað??) ;)

hdb sagði...

úúúúú... 7 er dularfull tala sbr. 7-9-13!!! Örugglega einhver að senda þér skilaboð að handan. Kannski er blokkin þín beint ofaná fornum grafreiti - eða þá bara gömlum urðunarstað. Hefur nokkuð verið gefið út svona urðunarstaðakort fyrir Hafnarfjörð???...

Ragnheidur sagði...

Urðunarstaðakort? Ég ætti kannski að fara að kynna mér sögu Hvaleyrarholtsins.

Nafnlaus sagði...

Voðalega eru þetta eitthvað dularfullar skýringar. Ég held að það sé mjög einföld skýring á þessu. Beverly Hills byrjar kl 7 og það er bara verið að minna þig á það..
Anna