þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Þokkafulla fólkið

Mig langaði til að vekja athygli lesenda á grein sem birtist í Fréttablaðinu í morgun sem fjallar um störf sem gera konur og karla aðlaðandi. Það hefur nú lengi verið ljóst að slökkviliðsmenn skora yfirleitt hátt í könnunum af þessu tagi og voru í þriðja sæti skv. Fréttablaðinu. Að vera nemi er hins vegar það sem gerir konur mest aðlaðandi. Mikið gasalega hljótum við hjónaleysin þá að vera aðlaðandi!

1 ummæli:

hdb sagði...

Að þú skyldir einhvertíma hafa efast um það... iss....