
Að loknum tíma í kjallara Neskirkju í gær gekk ég út, opnaði bílinn með fjarstýringunni og settist svo í bílstjórasætið. Brá svo alveg hrikalega þegar ég rak augun í bleika marimekko snyrtitösku og prjónavettlinga, sem ég hafði aldrei séð áður, í farþegasætinu fram í. Ég held meira að segja að ég hafi æpt. Þessar sekúndur sem ég sat þarna að reyna að átta mig á aðstæðunum flugu nokkrar órökréttar hugmyndir um í kollinum á mér. Sú fyrsta var að einhver hefði brostist inn í bílinn minn (einmitt þess vegna sem mér brá svona mikið og æpti). Svo áttaði ég mig á því að innbrotsþjófar taka hluti úr bílum en skilja þá ekki eftir svo að þá hlaut að vera að slökkviliðsmaðurinn hefði komið. Og skilið eftir bleika snyrtitösku og vettlinga! Frekar grunsamlegt ef það væri rétt. Þá áttaði ég mig á því að það eru víst til fleiri hvítir Skoda station bílar en minn og þessum sem ég sat inni í (og var búin að átta mig á að ég átti ekkert í) var haganlega lagt alveg við dyrnar og þar með nær mér en minn bíll og það vildi líka svo skemmtilega til að hann var ólæstur. Ég laumaðist í réttan bíl og keyrði af stað áður en nokkur tók eftir þessu.
2 ummæli:
hahahahaha, hefði viljað sjá svipinn á þér :D
Já ég hefði viljað sjá svipinn á þér ;) Vona að þið hafið það annars gott!
Kv. Lísa M.
Skrifa ummæli