miðvikudagur, mars 07, 2007
Jafnrétti
Sem Hafnfirðingi hefur mér verið mismunað undanfarna mánuði að því leytinu til að ég hef þurft að greiða mun meira fyrir pláss í leikskóla reknum af Félagsstofnun stúdenta og ætluðum fyrir börn námsmanna við HÍ en samnemendur mínir sem búa í Reykjavík. Ekki er við Félagsstofnun stúdenta beint að sakast heldur eru það misháar niðurgreiðslur sveitarfélaganna sem orsaka þennan mun. Um áramótin hækkuðu svo niðurgreiðslur frá Reykjavíkurborg umtalsvert og sá leikskólinn sér þá leik á borði að hækka gjöldin, þó þannig að reykvískir foreldrar borguðu minna en áður. Hafnfirskir foreldrar eins og ég fengu hins vegar bara sjokk og óbreyttar niðurgreiðslur og fór það svo að sá reikningur sem ég greiddi fyrir leikskólapláss í febrúar var tvöfaldur sá reikningur sem reykvískir foreldrar borguðu. Ég hef gert nokkuð í því undanfarið að hringja á bæjarskrifstofur Hafnarfjarðar og senda þangað tölvupósta og fór líka á fund bæjarstjóra til að skýra frá þessu máli og óska eftir breytingum. Það hefur skilað sér í því að fyrir marsmánuð greiði ég svipaða upphæð og Reykvíkingar. Þrátt fyrir að Hafnarfjarðarbær hefði eflaust endurskoðað niðurgreiðslur sínar hvort sem ég hefði þrýst á eða ekki þá er ég ekki viss um að breytingin hefði verið jafn mikil ef ég hefði ekki vakið athygli á hve miklu munaði. Það er ekki laust við smá sigurtilfinningu og aldrei að vita nema ég skáli fyrir bæjarstjóranum í vatnsglasi fyrir þessi viðbrögð og kannski líka fyrir að handlanga mig yfir einhvern læk fyrir 25 árum.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
you go girl! ;)
Flott hjá þér :o)
Svei mér þá ef þú endar ekki bara á Alþingi!!! En svona bara til að allt sé á hreinu þá var þetta ekkert lítill lækur - allavega ekki í minningu þeirrar sem óð yfir hann sjálf ;)
hdb
Þú hefur þá hér með notið bæjarstjórans sem mannlegrar brúar þinnar í tvígang. Til hamingju með það, og ennþá frekar með afmælið þitt í dag.
Glæsilegt Ragnheiður, flott hjá þér :D
Skrifa ummæli