þriðjudagur, apríl 24, 2007
Úff púff
Tvöföld ritgerðarskil núna um helgina og ég sit sveitt í Odda og reyni að klambra einhverju saman. Ég vildi að ég gæti sagt að mér gengi vel með þetta en það er því miður ekki svo gott. Er nú svo sem heldur ekkert algjörlega að klúðra málunum en mér finnst ég þurfa að hafa gríðarlega mikið fyrir því að lemja saman texta sem samt er ekki nema rétt sæmilegur. Er ekki alveg sátt við þetta þar sem báðar ritgerðirnar koma í stað lokaprófs í námskeiðunum og hafa því nokkuð mikið vægi. Það versta er að ég næ ekki að koma mér á þetta hæfilega stress stig sem fyllir mann orku og kemur manni til að klára hlutina. Ég verð bara ergileg og nenni þessu ekki. Ætli stressið brjótist ekki fram á lokasprettinum, sennilega bara um helgina, og leiði til þess að í flýti skrifi ég einhverja algjöra þvælu bara til þess að klára og skila. O jæja - þá verð ég að minnsta kosti búin með þetta.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Ég skal senda þér stressaða ritgerðastrauma svo þú klárir ritgerðirnar með glæsibrag :)
Takk!
Skrifa ummæli