miðvikudagur, maí 09, 2007

Stjörnuspáin

Einu sinni var stjörnuspáin í Mogganum þannig að maður gat alltaf tengt hana við eitthvað í sínu lífi þann daginn. Það fannst mér alltaf voðalega sniðugt, sérstaklega þegar hún passaði alveg upp á hár við eitthvað sem var að gerast hjá manni. Núna er hún hins vegar talsvert breytt og maður þarf að túlka hana meira ... sem ég nenni ekki að gera nema það blasi gjörsamlega við mér. Í dag er mín spá til dæmis svona:
Aumingja litla öskubuska í tötrunum sem vissi ekki hvort hún kæmist á ballið, en henni var bjargað. Þú skalt haga þér eins og prinsinn heppni - öruggur og í góðu stuði.
Og núna ætlaði ég að fara að skrifa eitthvað um að ég skildi bara ekkert hvað þetta ætti eiginlega að þýða en á meðan ég var að copy-paste-a rann upp fyrir mér ljós. Ég á að mæta í prófið á eftir örugg og í góðu stuði og bara massa þetta! Fatta þetta samt ekki alveg með Öskubusku. Vorkenni sjálfri mér að minnsta kosti ekki neitt enda finnst mér ég ótrúlega heppin og allt að ganga upp eftir björtustu vonum. Jæja, hugsið til mín milli 13.30 og 16.30 og sendið mér lögfræðilega strauma.

Engin ummæli: