Fyrsta leikskólavikan að baki með einu stóru grátkasti þegar mamma fór frá drengnum í smá stund og kvefi. Annars hefur Atli verið mjög ánægður í leikskólanum og er duglegur að leika sér en vill vita af mömmu sinni nálægt. Kvefið var hins vegar ekki alveg nógu gott þar sem það truflaði nætursvefninn talsvert og við þurftum að taka upp astmapústið sem annars hefur alveg verið látið vera síðan við komum til Ameríku.
Andri hefur ekki tekið neinar vaktir nýlega sem kemur sér kannski bara ágætlega þar sem það er nóg að læra hjá honum. Annars er allt bara við það sama hér. Hefur aðeins hlýnað aftur í veðri og maður getur alveg svitnað úti ef maður vill. Jæja, ég hef greinilega ekki mikið að segja ... bæ í bili.
laugardagur, september 22, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gaman að heyra að það gengur vel á leikskólanum :) og vonandi losnar Atli við kvefið sem fyrst!
Biðjum að heilsa Ameríkunni!
Skrifa ummæli