miðvikudagur, desember 12, 2007
Byssó
Hvar í ósköpunum hefur tveggja ára ormurinn lært að skjóta af byssu? Reyndar ekki alvöru heldur bara dóta Bósa ljósárbyssu sem stóri frændi á en þessi litli gróf gripinn af mikilli áfergju upp úr dótakassa í gær, hélt á henni í annarri hendi, setti vísifingur á gikkinn og beindi svo að mömmu sinni með orðunum "oda mömmu". Reyndar hafa álíka tilburðir oft sést með ýmiss konar prik þar sem hann segist "oda" en hingað til hef ég verið í afneitun um að hann væri strax kominn í byssó. Ég er eiginlega hálfhissa á þessu og velti því fyrir mér hvort þetta sé meðfætt svona gormum!? Mér finnst það þó ósennilegt en skil ekki alveg af hverju þessi hegðun er eitthvað sem hann hermir eftir en ekki eitthvað annað eins og prjónaskapur eða eitthvað. Ætli þetta þýðir að ég ætti að hætta að horfa á CSI og stilla bara á Mörthu Stewart í staðinn?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
hey, skulum ekki missa okkur upp í spól. það má eflaust finna betri fyrirmynd en mörtu!!! hvað með Dexter.......
Pittarinn
uhumm... Horfði hann ekki á pabba sinn og afa í skotmarkskeppni annan hvern dag í tvær vikur á Mallorca í sumar????
Skrifa ummæli