Eftir marga daga af ekki nokkrum fréttum er hreinlega allt að gerast í dag. Eða svona þannig. Í fyrsta lagi er rifrildið hjá hjónunum í næstu íbúð við okkur að ná nýjum hæðum. Eftir að hafa fylgst með rifrildum kvölds og morgna, grátköstum og almennu uppnámi hinum megin við vegginn heyrðum við í morgun rætt um skilnað. Eitt af fáum skiptum sem við höfum heyrt orðaskil en vonandi bara að blessuðu fólkinu líði betur í sundur en saman og við hættum að sofna og vakna við orðaskakið.
Í öðrum fréttum er að það hefur snjóað látlaust í heilan klukkutíma í morgun! Já og varla talað um annað í sjónvarpinu. Skólar lokaðir, þar á meðal leikskólinn hans Atla, og umferð gengur hægar en venjulega. Og svo heldur bara áfram að snjóa! Við Atli erum náttúrulega svo snarbiluð að við ætlum að hætta okkur út í þetta veður bráðum, í snjóbuxum og úlpum og Atli með lambhúshettuna sem ameríkanarnir furða sig heilmikið á (virðast aldrei hafa séð álíka flík og finnst hún meiriháttar) og sjá hvort við lifum það af. Læt vita.
þriðjudagur, febrúar 12, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Lifðum snjóinn af en entumst svo sem ekki lengi í púðursnjó sem engan veginn er hægt að hnoða.
Hæ...
Alltaf gaman að heyra fréttir frá ykkur :) Nokkrir nabblar reyndu að hringja til þín um helgina og ætluðu að syngja fyrir þig frumsamið lag ;)
Kys og Kram; Lísa M.
Skrambinn að missa af því!
Skrifa ummæli