Vaknaði í morgun skraufþurr í munninum þar sem nefið mitt var ónothæft til öndunar vegna hors. Hrikalega syfjuð lít ég í spegilinn og sé RISAstóra frunsu sem brýst iðulega fram þegar ég er þreytt, kvefuð og í prófum. Æði skæði. Náði nú að koma morgunmatnum sómasamlega upp í mig og fór í réttan jakka en þegar út var komið byrjaði ballið. Bíllinn frosinn, eina leiðin inn aftur í og að klifra fram í til að setja í gang, klifra aftur í til að komast út að skafa, skafa svo alla glugga bæði að innan og utan, komst loks af stað. Lagði bílnum og náði að opna dyrnar fram í ... frábært! Slepp við að príla! Nei, ekki svo gott. Þá var engin leið að loka bílnum. Eftir hálftíma gafst ég upp og tyllti hurðinni þannig að hún skelltist a.m.k. ekki í aðra bíla. Hlakka mikið til að fara aftur í þennan hlýja og notalega bíl á eftir.
þriðjudagur, desember 07, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Frábært! Nú er farið að snjóa á hálfopinn bílinn minn!!!
... ohhh alveg frábært... liggur við að maður fari að monta sig á því að vera bara á hjóli... nei kannski ekki... ;) Hehehe... vonandi fer brummi að hlýða og gangi þér vel í próflestrinum ;)
Skrifa ummæli