Mmm ... ég er komin í svo mikið vorskap. Þó að það hafi ekki verið neitt obboslega hlýtt í dag var eitthvað svo bjart og fallegt veður. Var meira að segja farið að glitta í bjartan himin í austri þegar ég lagði af stað í vinnuna. Nýt þess svo að horfa á öll þessi fjöll sem ég sé úr íbúðinni minni í svona fallegu veðri. Læt eina mynd af Keili fylgja með ... svona þar sem það er eitt af fáum fjöllum sem ég þekki nafnið á (amk ef ég horfi í þessa átt).
1 ummæli:
Þú ert álíka góð í landa(fjalla)fræði og ég :p
Er alveg til í Survivor fund fljótlega - það eru eiginlega bestu fundirnir
Skrifa ummæli