þriðjudagur, mars 07, 2006
Á meðan barnið sefur ...
... hangir mamman á netinu. Ætlaði að vera voða dugleg og vinna að hópverkefninu sem ég er að gera fyrir skólann. En það er nú einu sinni þannig að þegar maður situr fyrir framan tölvuna og er búinn að vera duglegur í smá stund og skrifa meira að segja nokkur orð á blað (eða skjá) þá fer hugurinn að reika. Svo sveimar maður á milli vefsíðna til þess að komast að því að maður er ekki að missa af neinu merkilegu (en ýmsu ómerkilegu). Ég held að ég þyrfti bara að prenta út greinina sem ég er að vinna með og slökkva á tölvunni svo að netheimar freisti ekki á meðan ég ætla að vera að læra. Á bara engan pappír til að prenta á! Já, ég veit þetta er léleg afsökun en hún gildir samt í dag. Svo finn ég nýja afsökun þegar ég er búin að kaupa pappír.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
hehe afsakanir eru alltaf af hinu góða. Oft ótrúlegt hverju maður kemur í verk með bilaða nettengingu ;o)
K
(og ég skal láta þig vita þegar ég er komin úr "pásu")
Hugsaðu þér hvað fólk eyddi miklum 'óþarfa' tíma í lærdóm í "gamla daga"! Þá voru tölvur ekki á hverju heimili og fólk þurfti að hafa fyrir því að leita að heimildum (t.d. á bókasöfnum) og handskrifa svo verkefnin! Tölvan og netið er svo mikill tímasparnaður að ég held þú megir nú eyða smá tíma í netið!! :)
(næst þegar þig vantar afsakanir skaltu leita til mín! ;))
Jájá, gat verið! Ég keypti pappír í gær og ætlaði að fara að prenta út núna en þá er blekið búið!
Skrifa ummæli