Ég ákvað að gera eins og Ansla og reikna út hve stórt hlutfall af heiminum ég hefði séð. Nennti svo ekki að setja myndina inn af því hún var eitthvað svo stór og ég nennti ekki að vesenast við að laga það (það er sko sunnudagur og maður má vera latur!). Ég hef sem sagt séð 5% af heiminum sem er nú ekki ýkja mikið finnst manni. Maður áttar sig betur á því hvað heimurinn er eitthvað stór og maður á sennilega aldrei eftir að sjá nema lítið brot af honum.
Önnur ástæða þess að ég læt kortið ekki fylgja færslunni er að mér finnst það engan veginn gefa rétta mynd af þeim hluta heimsins sem ég hef séð. Til dæmis var voru öll Bandaríkin merkt sem land sem ég hef farið til en ég hef bara farið til Flórída sem er langt frá því að vera öll Bandaríkin. Einnig voru tvær eyjar, Sikiley og Kýpur, sem gerðu það að verkum að bæði Ítalía og Grikkland voru inni á kortinu mínu, en ég hef hvorugt landið séð. Þar að auki fór ég til flestra þessara landa sem barn og hafði því ekki alveg sama áhugann á öllu því merkilega sem ég sá. Viðkvæðið við fornum mósaík myndum á Kýpur var til dæmis: Hvað er svona merkilegt við þetta?, sem var algjörlega setning þeirrar ferðar. Man svo hvað mér fannst japanska stelpan, sem var á mínum aldri (svona 8-9 ára) og var í sama "tour" og við með fjölskyldu sinni, mikill nörd að skrifa niður í litla stílabók það sem fararstjórinn sagði. Ég lét mér nægja að smella einni mynd af mósaík dæminu og þegar heim var komið smellti ég henni í albúm og skrifaði við: Einhver mósaík mynd. Ég lét þó held ég aðeins skár þegar við sigldum frá Kýpur og fórum til Ísrael og Egyptalands. Mér þótti það nú dáldið merkilegt að vera á slóðum sjálfs Jesú en eiginlega merkilegra að fara inn í pýramídana og sitja á bakinu á kameldýri. Einhvern tímann get ég nú kannski farið þetta allt aftur og mun þá væntanlega njóta þess betur. Kannski verð ég þá með Atla Þór á eftir spyrjandi hvað sé nú eiginlega merkilegt við þetta.
sunnudagur, apríl 09, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
hvað er svona merkilegt við þetta og ekki síður mér er alveg sama tímabilin voru náttúrulega mjög spes tími. Væri alveg til í að sjá allt þetta sem þú hefur séð en hefði ábyggilega sagt það sama á þessum tíma.
Anna
Sammála þér - þessi mynd sem fylgir gefur engan veginn rétta mynd af "heiminum" - en Kanada og Bandaríkin eru t.d. fulldekkuð hjá mér. En skondið hvað við höfum verið á sömu slóðum - ég hef farið til Flórída, Kýpur og Egyptalands og Ísraels (og svo u.þ.b. 14 önnur lönd) - en ég er samt ekki japanska nördastelpan :P
Þessi "einhver mósaík mynd" var einmitt í sögubókinni minni í Verzló þannig að þetta var örugglega eitthvað rosalega merkilegt. Ég man samt ekki frekar en þú hvað var svona merkilegt við þetta en það er önnur saga...
Skrifa ummæli