laugardagur, apríl 15, 2006

Laugardagur fyrir páska

Mig grunar að bloggandinn minn hafi skroppið til Flórída yfir páskana því undanfarið hef ég ekki haft mikið að segja hér. Hef nú svo sem ekki látið það stoppa mig áður og ákvað því að láta aðeins í mér heyra núna. Andri er kominn á vaktir aftur yfir helgina en hann hefur verið á námskeiði síðustu vikur sem er bara á dagvinnutíma svo heimilislífið hefur verið nokkuð eðlilegt undanfarið. Þess vegna var dálítið skrítið fyrir okkur mæðginin að hangsa ein heima í tólf tíma á skírdag. Það var alveg í lagi til svona hálffimm um eftirmiðdaginn en þá fór okkur að leiðast dáldið. Í gær var Andri svo heima fram að næturvakt svo að skírdagurinn var eiginlega lengri en föstudagurinn langi. Eftir páska fer hann svo í feikilangt fæðingarvetrarsumarorlofsfrí sem verður ljómandi fínt. Jæja, komin nógu mörg orð í bili um ekki neitt. Óska ykkur gleðilegra páska og njótið páskaeggjaátsins!
PS. Er búin að setja nýjar myndir á Atlasíðu.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleðilega páska til þín og familíunnar ;) Katlan