laugardagur, maí 20, 2006

Barnavagnagengið

Þær voru vígalegar konurnar sem gengu úr Kópavoginum og í Réttarholtsskóla áðan í beinni röð með barnavagnana. Í Réttarholtsskóla var 50 ára afmæli skólans fagnað, troðist um þrönga ganga með vagnana, gamla kennslustofan okkar heimsótt, hlustað á tónlist og spjallað við gamla skólafélaga og kennara. Góður dagur þótt lofthitinn hefði alveg mátt vera meiri. Einhverra hluta vegna kom það mér ekki á óvart að í skólanum eru enn sömu rauð-appelsínugulu gluggatjöldin og fyrir tíu árum og voru nú orðin talsvert þreytt þá.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vildi að ég hefði komist með, hefði verið gaman að kíkja á gamla skólann :) svona rétt fyrir endurfundina