laugardagur, maí 27, 2006

Kjördagur og ríjúníon

Stór dagur í dag. Fyrst er auðvitað að kjósa en í kvöld mun ég hitta fyrrum samnemendur mína úr Réttó. Í ár eru nefnilega 10 ár síðan við útskrifuðumst þaðan. Núna hef ég haft nokkurn tíma til að venjast þeirri tilhugsun að 10 ár séu liðin en fyrir nokkru síðan fannst mér þetta alveg ótrúlegt. Það kom mér ekki endilega á óvart að svo langt sé liðið síðan ég var í Réttó heldur frekar að það væru komin 10 ár síðan ég byrjaði í MH. Mér finnst nefnilega svo stutt síðan ég var í menntaskóla.
Eníveis ... það verður ábyggilega gaman í kvöld. Það var útbúin síða um ríjuníonið (www.retto96.tk) sem er voða gaman að skoða, a.m.k. fyrir þá sem þekkja til ... og þeir vita nú líklega allir af síðunni svo það er kannski tilgangslítið að taka það fram hér. Voðalegt tuð er þetta í mér ... er hætt núna!

Engin ummæli: