Það er veldi á litlu fjölskyldunni í Hafnarfirði þessa dagana. Þessa dagana erum við nefnilega með tvo bíla til afnota og erum að íhuga kaup á litla rauða bílnum til viðbótar við fjölskyldukaggann. Lífið getur nefnilega verið ansi flókið þegar lítið kríli er komið í spilið og langt að fara í vinnu og skóla.
Í gær þegar við vorum að reyna að skipuleggja hvernig best væri að koma öllum á sinn stað morguninn eftir og svo aftur heim síðdegis komumst við eiginlega að því að slíkt skipulag væri ekki á færi nema þrautþjálfaðra og hámenntaðra skipulagsfræðinga. Þrautin olli okkur slíkum heilabrotum (sem skiluðu fáum góðum niðurstöðum) og tilhugsunin um að standa frammi fyrir viðlíka vandamálum reglulega næsta veturinn varð til þess að kostnaðurinn við aukabíl varð ásættanlegur til að losna undan skipulagi af þessu tagi.
Það var því heppilegt að þekkja fólk sem á bíl sem það er hætt að nota og fá hann til prufu í nokkra daga áður en lokaákvörðun verður tekin. Ekki skemmir fyrir að bíllinn er slökkviliðsrauður og heitir því héðan í frá slökkviliðsbíllinn.
þriðjudagur, september 26, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Ég óska bara fyrirfram til hamingju með sklökklviliðsbílinn.
Skrifa ummæli