föstudagur, desember 15, 2006
Fjögur af fimm
Var að skila heimaprófi sem var jafnframt fjórða og þar með síðast prófið í þessari viku. Gekk bara ágætlega en ég er eiginlega glöðust yfir því að það er næstum því vika í næsta og allra síðasta prófið svo ég þarf ekki að sitja yfir bókum non-stop um helgina. Svei mér þá ef það vottar ekki bara fyrir jólaskapi líka - eitthvað sem lítið hefur farið fyrir hjá mér undanfarið. Best að fara að gera eitthvað skemmtilegt!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
vei, þú hefur þá fengið jólaskapið sem ég sendi þér í pósti ;) Til hamingju með að prófvikan mikla er að baki!
Skrifa ummæli