Ég fékk verstu próftöflu sem um getur fyrir þessi jólin. Fæ að taka fjögur próf á fimm dögum í næstu viku, sem sagt á mánudag, þriðjudag, fimmtudag og föstudag. Eins og það sé ekki nóg þá þarf síðasta prófið mitt að vera eins seint og hægt er eða 21. desember. Í ofanálag er ég búin að vera með hitavellu og hrikalegt kvef án þess að mega vera að því að láta mér batna vegna próflesturs. Ég er reyndar að hressast og það sem helst hrjáir mig núna er stíflað nef og ógrynnin öll af hori. Smart!
Þá er tuðinu lokið í bili. Best að reyna að tækla þessa aðferðafræði sem ég verð víst prófuð í á mánudaginn.
laugardagur, desember 09, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Æj æj...þú færð alla mína samúð! :( Gangi þér vel í prófunum og láttu þér batna!
Þú færð líka alla mína samúð, brjálað að gera hjá mér, en ég þarf allavega ekki að fara í nein próf, slepp vel þar. Gangi þér sem allra best, ég hugsa til þín
.. og ég sem var að væla yfir minni próftöflu (annan hvern dag)... Mössum þetta ;)
Skrifa ummæli