sunnudagur, janúar 14, 2007

Já, alveg rétt. Ég á bloggsíðu!

Jæja þá er skólinn byrjaður aftur, einkunnirnar búnar að skila sér, allt á kafi í snjó og Londonferð á næsta leiti. Drengurinn er orðinn mun hressari en hann var um jólin og í upphafi árs, nýtur þess að fara í leikskólann á hverjum degi og er meira að segja farinn að borða aftur og það mikið!
Ég veit ekki alveg hvað ég á að skrifa hérna meira en þetta er í það minnsta tilraun til að koma síðunni aftur í gang. Kannski (bara kannski, lofa engu) verður næsta færsla örlítið (ábyggilega ekki mikið) meira djúsí. Yfir og út!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

oh, ég öfunda ykkur ekkert smá af snjónum, veit að hann getur verið erfiður, en hann er bara svo miklu skemmtilegri en rokið og rigningin sem eru búin að vera hér