Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. Veikindin hjá drengnum héldu áfram fram yfir áramótin en á nýársdag eyddum við dágóðum tíma á barnaspítalanum þar sem meðferðin var endurskoðuð og síðan þá hefur hitinn lækkað almennilega og allt virðist loksins á réttri leið. Drengurinn er samt alveg hrikalega mömmusjúkur þessa dagana og ég má ekki leggja hann frá mér í andartak án þess að það kosti mikinn grát. Ég held reyndar að hluti af vandamálinu sé að honum leiðist bara að húka svona mikið heima hjá sér.
Ég man ekki alveg hvað annað ég ætlaði að skrifa hérna inn þar sem það tók mig dágóða stund að skrá mig inn á bloggerinn. Ég hélt nefnilega að ég væri búin að gleyma aðgangsorðinu þar sem það kom alltaf melding um það og bað um að fá nýtt lykilorð sent. Það skilaði sér svo aldrei með tölvupóstinum og mér fannst þetta allt mjög skrítið þangað til að ég fattaði að ég var að slá inn rangt notendanafn. Þannig að einhver (væntanlega nafna mín) með notendanafnið ragnheidur fær sendan tölvupóst með nýju lykilorði!
miðvikudagur, janúar 03, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gaman fyrir Ragnheiði að fá svona áramótaglaðning ;)
Skrifa ummæli