þriðjudagur, febrúar 06, 2007
Óstuð
Ég verð að viðurkenna að ég er ekkert í neitt svakalegu stuði þessa dagana. Þá er ég ekki að meina að ég sé í eitthvað vondu skapi heldur vantar upp á allt "skólastuð". Það er svoleiðis mergðin af verkefnum sem ég þarf að vera að vinna í, bæði í hópum og ein, en einhverra hluta vegna kem ég mér engan veginn í gang. Sit bara og stari á lesefnið eða tölvuskjáinn, skrifa kannski örfá orð í mesta lagi. Þetta er náttúrulega alls ekki nógu gott og slæm nýting á þeim takmarkaða tíma sem ég hef á milli fyrirlestra á meðan Atli er í leikskólanum. Ég þarf spark í rassinn.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
*spark* ;)
ég skal frekar knúsa þig.
JAK
Æ það koma alltaf svona tímabil, lær-andinn kemur örugglega yfir þig fljótlega þegar þú átt síst von á ;)
Skrifa ummæli