mánudagur, febrúar 19, 2007

Að vakna til lífsins

Ég man ekki hvað gerðist í síðustu viku en mig grunar að það hafi nú hvorki verið margt né sérstaklega spennandi. Hár hiti, beinverkir, hósti og hálsbólga komu eitthvað við sögu ásamt óhóflega miklum svefni og Panodil áti. Verst hvað þetta tók langan tíma því ekki gat ég lært á meðan og sit nú í súpunni með ekki nema hálfa heilsu að reyna að klára verkefni sem eru komin á skiladag. En svona er víst lífið.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ææ, gangi þér vel að vinna upp þessa viku xxx
Hrönn