Þessi vika hefur gengið vel. Andri er búinn að vera á fullu í skólanum og hefur svo sem lítið sést hér heima, en við Atli höfum haldið áfram í leikskólaprógramminu okkar. Á þriðjudagskvöldið fór svo allur hópurinn út að borða á T.G.I. Friday með Erick paramedic sem ætlar að leiðbeina strákunum á sjúkrabílavöktunum og Jen konunni hans. Atli var orðinn svolítið þreyttur og með svefngalsa á háu stigi svo að minn tími fór að mestu í að hlaupa á eftir honum og þess vegna missti ég af stórum hluta af samræðum kvöldsins. Heyrði þó útundan mér að það væri varasamt að labba út í Giant Eagle hér ekki langt frá okkur, og að þangað ætti maður alls ekki að ganga einn. Hmmm ... þangað hef ég held ég aldrei farið nema gangandi og í nokkur skipti ein (eða ein með Atla sem er eiginlega bara verra). En ástæðan er sú hversu nálægt Homewood hverfinu verslunin er en þar fátæktin og félagslegu vandamálin. Ég hélt að það væri allt í lagi að fara þetta svona um hábjartan dag en það á maður víst heldur ekki að gera. Ojæja, ég fæ vonandi bara bíl bráðum.
Talandi um bíla að þá er Andri núna á ökutækjaskráningarskrifstofunni og kemur vonandi heim með PA ökuskírteini og þá getum við keypt bíl í dag eða um helgina. Við fengum svo þær fréttir af Bílaspítalanum í Hafnarfirði að Skodinn væri loksins tilbúinn eftir að hafa staðið á verkstæðinu á meðan starfsmenn tóku sér sumarfrí. En hann ætti að vera eins og nýr núna svo ef einhvern vantar eitt stykki Skoda ... þá er hann til sölu.
Var að setja nýjar myndir á vefinn, Pittsburgh Zoo og fleira. Þar má meira að segja finna myndir af glæsilega baðherberginu okkar!
Hersey kossar og knús á línuna.
föstudagur, ágúst 31, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli