þriðjudagur, ágúst 21, 2007

Meira veðrið

Núna virðist aðeins vera að létta til hér í Pittsborginni en það hefur rignt (og þá meina ég sko rignt!) síðan á sunnudag. Voru meira að segja þrumur og eldingar seinni partinn í gær. Í svoleiðis veðri er lítið annað að gera en að fara í búðir (þegar hinir eru að fara í búðir og við getum flotið með í þeirra bílum) því ekki nennum við Atli að taka til (sem er alveg þörf á) og sjónvarpið ótengt og búið að lesa allar bækur hundrað sinnum.
Á sunnudaginn kíktum við sem sagt í Pittsburgh Mills mollið og versluðum nákvæmlega ekki neitt. Mestur tími fór í að borða og svo fór Andri á stúfana eftir amerískum SIM kortum í farsímana okkar og við Atli lékum okkur í barnalandinu á meðan. Þar var ógurlegt fjör og Atli mjög glaður að hitta svona marga krakka og geta prílað á einhverjum ormum og farið í gegnum göng á milli þess sem hann fræddist um ferðalag maís-baunar og hvernig hún festi svo rætur og óx.
Í gær fóru strákarnir á skrifstofu skólans og sóttu bókalista og komu svo heim með fjall af bókum eftir dúk og disk. Á meðan dútluðum við Atli okkur heima og kíktum svo aðeins út á milli skúra. Fyrir utan húsið okkar er grænt svæði sem hægt er að leika sér aðeins á. Þar hittum við litla stelpu sem heitir Nana og mömmu hennar en þær eru frá Japan og búa í sama húsi og við. Við fengum að blása sápukúlur með þeim og hittum líka kisu. Svo var Nana orðin syfjuð og þurfti að fara inn að lúlla og þá fengum við Atli okkur göngutúr um hverfið.
Eftir hádegið í gær var svo hópferð í Target þar sem bætt var í helstu eldhúsnauðsynjar og fleira. Svo voru bara rólegheit og farið snemma í háttinn. Í dag höfum við Atli aðeins náð að raða betur í fataskápana okkar því við eiginlega bara hentum öllu inn þegar við tókum upp úr töskunum okkar. Þetta verður þó sennilega framhaldsverkefni á morgun og jafnvel lengur miðað við hraðann hjá okkur. Atli er alveg duglegur að láta mig vita af því að sér finnist þetta ekkert rosalega skemmtilegt.
Á sunnudaginn heyrðum við í ömmu og afa í Kjaló, bæði í síma og í Skype. Atla fannst nú ekkert leiðinlegt að sjá afa sinn í tölvunni og þegar ég spurði hann í morgun hvar afi væri benti hann bara á tölvuna.
Jæja, nóg í bili. Yfir og út.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gott að það skuli ganga svona vel hjá ykkur og að Atli skyldi vera svona rosalega duglegur á öllu þessu ferðalagi. Gaman að lesa um ykkur og skoða myndirnar, þá fær maður aðeins að fylgjast með þessu ævintýri ykkar.
Kv.
Sandra og co.