þriðjudagur, september 11, 2007

Nýjar myndir

Komin heil vika frá síðasta bloggi og ástæðan er einfaldlega sú að það hefur ekkert mikið gerst. Og svo hef ég heldur ekki verið í stuði til að blogga. Lífið er að komast í ágætis rútínu hjá okkur þó að botninn hafi aðeins dottið úr leikskólaprógramminu okkar Atli. Drengurinn sættir sig ekki við að það séu til hringir og þríhyrningar og ferningar og ferhyrningar og kallar þetta bara allt kassa. Býð ekki í það þegar ég fer að kynna hann fyrir tíglum, hálfmánum, stjörnum og hjörtum.
Eníveis, er ekkert í neinu rosa bloggstuði núna en er búin að setja nýjar myndir á netið svo þær verða bara að duga. Adíós.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kvittikvitt! Gaman að skoða myndirnar :)

Nafnlaus sagði...

Skemmtilegar myndir, Atli er greinilega upprennandi myndasmiður :)

Nafnlaus sagði...

Súludansinn er alger snilld. Hvar hefur drengurinn lært þetta? Lumar frúin í Pittsburgh á færanlegri súlu sem hún grípur stundum í? ;-P
hdb

Ragnheidur sagði...

Kannast nú ekki við færanlega súlu, hef bara laumast út og snúið mér í kringum ljósastaura. ;)

Margrét Lára sagði...

Alltaf gaman að kíkja á bloggið þitt, þú ert svo skemmtilegur penni Ragnheiður ;)Ég hlakka til að fá frekari fréttir.