Kuldi og rigning hér í dag. Minnir mann bara á Ísland ... nema að það vantar rokið. Atli var alveg alsæll að fara í úlpu áður en við fórum á leikskólann. Heilsaði svo kennurunum sínum með hinu hefðbundna morgunvæli sem er eiginlega frekar fyndið. Hann mætir á svæðið og er bara í góðum gír, byrjar svo að skæla um leið og hann labbar frá mér og vinkar bless og fer í fangið á miss Erin, sem hann heldur mikið upp á. Svo kveð ég og fer og Atli hættir að gráta og fer að leika sér.
Annars er það gleðiefni dagsins að Andri kemur snemma heim, er búinn á vaktinni kl. 14. Vondu fréttirnar eru hins vegar þær að hann verður ábyggilega dauðþreyttur og ekki í miklu stuði þar sem hann fór á fætur kl. fimm í morgun og hefur verið á löngum vöktum eða með langa skóladaga alla þessa viku. Svo á hann líka eftir að læra fyrir tvö próf í næstu viku og skrifa nokkuð margar sjúklingaskýrslur yfir helgina. En hann getur nú vonandi aðeins leikið við okkur Atla.
fimmtudagur, október 11, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli