miðvikudagur, október 31, 2007
Halloween
Í dag er Halloween og við Atli erum klædd sem innipúkar á náttfötum og í jogginggalla. Atli fór reyndar aðeins í ljónabúninginn sinn áðan utan yfir náttfötin svo hann gæti sýnt frænku sinni hvernig ljón líta út þegar þau spjölluðu saman á Skype áðan. Hann er sem sagt enn þá með smá hitavellu en er þó allur að braggast. Getur í það minnsta pirrast út í mömmu sína þegar hún hlýðir ekki eða hagar sér eins og algjör kjáni með því að setjast í sófann en ekki á gólfið við hliðina á stráknum sínum. Það átti að vera eitthvað um að vera á leikskólanum í dag og allir máttu mæta í búningum en því miður missum við af því. Leikskólastjórinn sagði mér þó að smá glaðningur myndi bíða Atla í hólfinu hans þegar hann væri orðinn hress og kæmi aftur í leikskólann.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli