fimmtudagur, nóvember 01, 2007

Nýjar myndir

Veikindin virðast vera að baki þótt sá litli hafi reyndar sleppt leikskólanum í dag líka. Hann fékk líka smá nasasjón af Halloween í gær þegar pabbi hans dró hann hálfnauðugan fram á gang í ljónabúningnum að skoða Halloween skraut og "trikk or tríta" hjá nokkrum nágrönnum hér á hæðinni. Sá litli var svo alveg hæstánægður með sælgætið sem hann fékk og bruddi sleikjó á milli þess sem hann stakk upp í sig kjúklingabitum í kvöldmatnum. Þetta má sko á Halloween!
Í gær gengum við Atli svo frá fari fyrir okkur til Íslands aðeins fyrr en áætlað var. Við ætlum sem sagt að fara heim samferða mömmu og pabba (líka þekkt sem amma og afi) og lendum því á Íslandi eldsnemma að morgni 1. desember eftir rúmlega ellefu klukkustunda ferðalag. Andri getur þá verið kúristi í friði á meðan hann er í prófum og kemur svo á klakann 17. des. Nóvembermánuður verður því helgaður jólagjafainnkaupum því þeim skal lokið áður en við förum heim. Og talandi um jólin, þá sá ég fyrstu jólaauglýsinguna í sjónvarpi í gær. Á örugglega eftir að sjá fleiri á næstunni því mér skilst að jólavertíðin byrji um leið og Halloween er lokið.
En eins og titillinn á þessari færslu gefur til kynna þá eru komnar nýjar myndir. Og ekki bara nokkrar myndir heldur heil 98 stykki. Það er nú reyndar ekki nema brot af þeim myndum sem við höfum tekið í október, enda með nýja myndavél sem þarf að prófa dálítið vel. Eníveis ... 401 Shady avenue sjötta hæð kynnir með stolti: Októbermyndir.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jeij, nýjar myndir! :) Ég væri nú alveg til í að fara á svona Childrens museum...Sýnist þetta vera líka mjög gaman fyrir foreldrana ;)
Rosalega er Atli annars orðinn stór! Samt ekki nema 2 mánuðir síðan maður sá hann...
Hlakka til að sjá ykkur í desember :)
og já, graskerið...glæsilegt!! :)

Nafnlaus sagði...

Jeij, nýjar myndir! :) Ég væri nú alveg til í að fara á svona Childrens museum...Sýnist þetta vera líka mjög gaman fyrir foreldrana ;)
Rosalega er Atli annars orðinn stór! Samt ekki nema 2 mánuðir síðan maður sá hann...
Hlakka til að sjá ykkur í desember :)
og já, graskerið...glæsilegt!! :)

Nafnlaus sagði...

vó...ætlaði ekki að senda þetta 2x! En svona er þetta, maður er svo æstur í að kommenta ;)

Ragnheidur sagði...

Hehe. Bara gaman að fá mörg komment hjá þér. ;)