fimmtudagur, nóvember 08, 2007

Um allt og ekkert

Leikskóladvölin hjá Atla hefur tekið miklum framförum í þessari vikur. Komu bara nokkur tár þegar við kvöddumst í gær og fyrradag og í morgun grét hann bara ekki neitt. Fram að þessu hafði alltaf verið smá drama þegar hann mætir á svæðið og nokkur tár fallið af og til um morguninn þótt hann hafi notið sín og verið duglegur að leika þess á milli. Hann hefur kannski bara þurft að fatta hvað það er hundleiðinlegt að hanga með mömmu heima í heila viku til að kunna betur að meta leikskólann og krakkana.
Annars er það helst í fréttum að ég er komin með ný gleraugu. Mér finnst það ekkert smá gaman, sérstaklega þar sem hin voru orðin ansi skökk, skæld og brotin ... og búin að vera það lengi. Læt Andra taka mynd við tækifæri og skelli inn svo þið getið séð ;). Svo er orðið ansi kalt hérna og meira að segja snjóaði pínu á mig í gær. Reyndar alveg pínkulítil snjókorn sem varla sáust og voru horfin um leið ... en samt snjór. Ég er búin að vera svo mikið hugsa um jólagjafir undanfarið að ég er barasta komin í jólaskap og þetta var alveg til að toppa það. Fór meira að segja að leita að jólamyndum á On demand!
Í gær heimsóttum við strákana í skólann. Vorum á rúntinum með Rögnu og Pésa og ákváðum að heilsa upp á þá í síðdegishléinu. Gaman að sjá staðinn og Atli var frekar mikið hrifinn af dúkkunum sem þeir æfa sig á í verklegu tímunum. Hann var alveg með það á hreinu að það þyrfti að laga þessa kalla sem lágu svona á gólfinu.
Jæja, farin að nýta tímann á meðan gæinn er á leikskólanum.

Engin ummæli: