þriðjudagur, febrúar 17, 2004

Er ekki tími til kominn að blogga? Jú ég held það bara. Ég skrifaði tölvupóst um daginn til að minna á efni annars tölvupósts sem ég hafði skrifað viku áður. Í nýja tölvupóstinn skrifaði ég í subject fyrirsögnin-áminning. Hugsaði svo ekkert frekar út í þetta subject þangað til á föstudaginn að ég fékk hringingu frá ónefndum aðila sem hafði fengið þennan tölvupóst ásamt öðrum og var að spyrja mig eitthvað út í þetta mál. Viðkomandi endaði svo á því að spyrja mig út í þetta subject. "Þegar þú skrifar áminning, áttu þá við áminningu í starfi?" Ég kom gjörsamlega af fjöllum enda ekki með valdastöðu til þess að veita þessum manneskjum áminningu í starfi (frekar að það væri öfugt). Kannski hefði verið heppilegra að skrifa ítrekun í stað áminning, en í alvöru talað ... ég bjóst nú ekki við því að þetta gæti misskilist. Þú þarft nú að vera eitthvað viðkvæmur fyrir til þess að túlka þetta svona. Ég fékk samt svo gríðarlegt samviskubit yfir þessu að ég var með hnút í mallanum allan föstudaginn og það er því nokkuð víst að ég nota orðið áminning ekki aftur án þess að hugsa mig tvisvar um.

Engin ummæli: