miðvikudagur, febrúar 11, 2004
Hreint út sagt þá held ég að mér hafi sjaldan leiðst jafn mikið og í dag. Það hefur ekki verið neitt að gera hjá mér. Síminn hefur varla hringt, tölvupósturinn er bilaður svo að ca. annað hvert skeyti sem ég sendi eða fæ sent kemst til skila svo það sem krefst tölvupóstssamskipta hefur verið hálf tilgangslaust í dag og þar að auki eru almenn verkefni af afskaplega skornum skammti í dag. Ég er búin að vera í nánast stöðugum msn-samskiptum við andra síðan á ´hádegi í dag af því að honum hefur leiðst jafn mikið og mér. Ég sver það, ég tek bók með mér á morgun og sit bara og les ef þetta verður svona líka þá. Ekki slæmt að fá borgað fyrir það!! Annars er ég nú að vona að kraftaverkið fari að gerast og heimasíða hjúkrunar á LSH komist í gagnið svo ég geti farið að gera minn skerf (og kannski annarra líka) þar. En þó að tíminn hafi liðið hægt í dag, hefur hann samt sem áður liðið og nú er barasta kominn tími til að koma sér í burtu héðan.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli