fimmtudagur, febrúar 05, 2004
Nú er ég að spá í að vera smá nörd og nördast. Kannski finnst einhverjum öðrum nördum að þar sem ég er nú saltfiskur í íslensku ætti ég frekar að vera njörður og nirðast, en mér finnst það hljóma hálföfuguggakennt svo ég held mig við sletturnar í bili. Málið er að fyrir ekki svo löngu síðan rakst ég á orðalagið "... víst að ég kemst ekki ... " á íslenskum spjallþræði. Þarna hefði ég sagt og skrifað "fyrst að ég kemst ekki" og fannst einhvern veginn ekki líklegt að manneskja með íslensku að móðurmáli myndi segja svona lagað. En síðan þá hef ég rekist á mörg svipuð dæmi og nú síðast á heimasíðu Mímis, þar sem ég geri ráð fyrir að nemandi í íslensku hafi verið sá sem notaði þetta orðalag. Samkvæmt minni málkennd og orðabók er ekki hægt að nota víst í þessari merkingu og ekki heldur skipta fyrst út fyrir víst enda um sitt hvorn orðflokkinn að ræða. En þá spyr ég ykkur, báðar manneskjurnar sem lesa þetta blogg; finnst ykkur eðlilegt að segja: víst að ég kemst ekki?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli