þriðjudagur, maí 04, 2004

Hef komist að því að ein manneskja les bloggið mitt og það er hún Kolfinna. Hún fær þess vegna hrós dagsins! En ég geri mér reyndar fyllilega grein fyrir því að í hörðum heimi bloggsins þýðir lítið að byggja upp lítinn en notadrjúgan lesendahóp, taka svo ógnarlöng hlé á skrifunum en ætlast til þess að fólki leiðist virkilega nógu mikið til þess að ramba á bloggið mitt og gá hvort mér hafi nokkuð dottið eitthvað í hug að skrifa þegar síðan hefur verið gjörsamlega óbreytt í mánuð.

Engin ummæli: