miðvikudagur, maí 12, 2004
Hún á afmæli hún Florence ...
Í dag á Florence Nightingale afmæli og í tilefni af því er haldið upp á dag hjúkrunar um allan heim. Ný heimasíða hjúkrunar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi var opnuð í dag og ég átti nokkurn þátt í að koma henni á laggirnar svo mér fannst nú rétt að minnast aðeins á þetta. Þeir sem vilja skoða smelli hér. Myndin á forsíðunni er dáldið skondin af því að maður gæti haldið að flestir hjúkrunarfræðingar spítalans væru karlkyns ef maður dæmdi út frá þessari mynd einni ... en það er víst ekki svo gott!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli