mánudagur, maí 17, 2004

Sumarið er komið og Greenpeace í stuði

Það er opinbert ... sumarið er komið í alvöru núna! Það var nefnilega verið að slá grasið í kringum landspítalann í dag og ilmandi grasilmur um allt í hitanum.

Svo hélt ég að ég hefði eignast dularfullan þýskan aðdáanda því í póstinum í dag var bréf frá Volker nokkrum Backhaus og það var meira að segja á íslensku. Bréfið reyndist nú ekki merkilegra en það að hr. Backhaus er Greenpeace-liði og hafði fundið sig knúinn til að lýsa afstöðu sinni til hvalveiða fyrir mig og það að hann hafi lengi langað til Íslands að skoða hvali en það stríði gegn náttúruverndartrú hans að koma til lands sem stundar hvalveiðar. Áhugavert sjónarmið en ég leyfi mér að efast um áhrifamátt þessara bréfa. Það er gott og blessað að berjast fyrir verndun náttúrunnar en aðferðir Greenpeace eru mér ekki að skapi.

Engin ummæli: