Við Andri vorum í Álfholtinu í gærkvöldi - aldrei þessu vant. Erum búin að mála allt sem á að mála og þá er bara eftir að græja gólfið. Ég var að setja nýja höldur á skápana í eldhúsinu í gær en það gekk nú ekkert alltof vel hjá mér. Komst að því að skápahurðirnar snúa margar hverja öfugt, þ.e.a.s. ef þú ert rétthent manneskja að skrúfa höldur á. Þá er nefnilega miklu þægilegra að halda höldunni með vinstri hendi og nota þá hægri til að skrúfa. En þegar hurðin er öfug leiðir þessi aðferð til þess að haldan lendir innan á skáphurðinni en skrúfurnar utan á. Nákvæmlega þetta kom fyrir mig oftar en einu sinni og oftar en tvisvar í gærkvöldi og skemmti Andra mjög vel. Snilligáfan verður seint tekin af mér!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli