Hvernig er það mögulegt að tvær vekjaraklukkur sem eru eiga að hringja um sjö að morgni klikki báðar? Fyrir einhverja mildi vöknuðum við Andri samt í morgun, of seint en samt ekki þannig að við værum allt of sein. Náðum að kýla okkur fram úr og koma okkur af stað. Alltaf jafn elskulegt að byrja daginn þannig. Ég toppaði svo allt saman með því að þeyta fullum kaffibolla á hliðina og yfir allt. Lyklaborðið slapp þó en allir litlu, fínu, gulu post-it miðarnir mínir eru fallega kaffibrúnir. Það kannski hvetur mig til að ganga frá þeim málum sem ég var búin að punkta hjá mér á þá. Nema ég hendi bara miðunum og þykist hafa gleymt þessu. Jæja, klukkan orðin níu! Bíð spennt eftir því að sjá hvernig restin af deginum verður!!!
þriðjudagur, janúar 18, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
... gestur nr. 2314 segir... Óheppni óheppni óheppni en hvenær má ég koma í heimsókn að skoða nýju íbúðina og síðast en ekki síst hvenær er innflutningspartýið?
Kveðja, Margrét Lára
Ætli við byrjum nú ekki á því að flytja inn áður en við höldum innflutningspartý ... þó að hitt sé nú ekki svo galin hugmynd ;)
Skrifa ummæli