Loksins, loksins höfum við Andri ákveðið hvaða litir eigi að vera í íbúðinni og það tók aðeins meira en þrjár prufudollur og miklar pælingar í litanöfnum. Niðurstaðan er goðagrátt, antikhvítt og eirgrænt ... svona ef að það segir ykkur eitthvað. Stefnir í að við getum málað um næstu helgi ... ekki fyrr ... þetta gerist allt hægt og rólega hjá okkur enda ekkert sem liggur á!
Ég er búin að vera að vinna alla helgina. Finnst reyndar eins og helgin hafi verið þrír dagar af því að ég var allan föstudaginn á "flensudeildinni" á Hringbraut þar sem enginn sjúklingur er með flensu. Þegar ég er að vinna þarna niðurfrá sting ég veskinu mínu alltaf í lítinn skáp. Ætlaði svo að ná mér í varasalva um hádegisbilið í gær og fann þá ekki lykilinn í neinum vasa á fína hjúkkusloppnum sem ég var í. Ég byrja á því leita hátt og lágt á deildinni og finn ekki neitt. Sé þá fram á að þurfa að hlaupa á alla staðina sem ég var búin að koma við á þá um daginn sem voru ekkert svo fáir og dreifðir um allan spítala. Þegar ég er búin að hlaupa um hálfan spítalann dettur mér skyndilega í hug að athuga í buxnavasanum mínum. Og viti menn! Þar var lykillinn. Ég var sem sagt ansi þreytt í gær enda hef ég ekkert verið alltof dugleg við að fara snemma að sofa undanfarið. Bætti úr því í gærkvöldi reyndar og var allt önnur í dag.
sunnudagur, janúar 16, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
vildi bara deila því með þér að við erum líka með antik hvítt á okkar veggjum :) þannig að ég samþykki litaval þitt ;)
magga
Great minds think alike!
Komin á rétt ról ;o)
Til hamingju með nýju íbúðina. Nöfnin á litunum hljóma mjög vel - hef reyndar ekki hugmynd um hvernig þeir líta út, en nöfnin eru flott.
Skrifa ummæli